Hvernig getum við aðstoðað?
Finndu svör um bókanir, reikninginn þinn og hvernig fyrirtæki nota Búkk.is. Ef þú finnur ekki svarið höfum við beint samband.
Bókanir
Hvernig bóka ég tíma?+
Finndu fyrirtækið í leitinni eða á forsíðunni, veldu þjónustu, dagsetningu og tíma, og staðfestu. Þú færð staðfestingu í tölvupósti um leið.
Get ég breytt eða afbókað tíma?+
Já. Notaðu hlekkinn í staðfestingarpóstinum til að breyta eða afbóka. Vinsamlegast afbókaðu með góðum fyrirvara svo aðrir komist að.
Ég fékk enga staðfestingu í tölvupósti+
Athugaðu ruslpóstinn og að netfangið hafi verið rétt slegið inn. Ef pósturinn kemur samt ekki skaltu hafa samband við okkur og við finnum bókunina þína.
Þarf ég að stofna reikning til að bóka?+
Þú getur skoðað fyrirtæki án reiknings, en til að staðfesta bókun þarftu að gefa upp nafn, síma og netfang svo fyrirtækið nái í þig.
Reikningur og persónuvernd
Hvernig breyti ég upplýsingunum mínum?+
Skráðu þig inn og farðu í „Mínar upplýsingar“. Þar geturðu uppfært nafn, síma, netfang og fleira.
Hvernig eru gögnin mín geymd?+
Við förum með persónuupplýsingar samkvæmt persónuverndarstefnu okkar. Þú getur beðið um afrit eða eyðingu gagna hvenær sem er.
Lesa persónuverndarstefnuFyrir fyrirtæki
Hvernig set ég upp fyrirtæki á Búkk.is?+
Stofnaðu aðgang, bættu við þjónustu, opnunartímum og starfsfólki, og deildu síðunni þinni. Viðskiptavinir geta þá bókað beint á netinu.
Byrja núnaHvað kostar að nota kerfið fyrir fyrirtæki?+
Búkk.is er ókeypis. Það er enginn falinn kostnaður og engin skuldbinding.
Skoða verðskráGet ég stjórnað aðgangi starfsfólks?+
Já. Þú býður starfsfólki inn með tölvupósti og hver og einn sér aðeins sínar eigin bókanir og prófíl, aldrei rekstrarstillingar eða gögn annarra.
Verð og greiðslur
Kostar það viðskiptavini að bóka?+
Nei. Það er ókeypis fyrir viðskiptavini að finna fyrirtæki og bóka tíma á Búkk.is.
Hvernig fer greiðsla fyrir þjónustuna fram?+
Greiðsla fyrir þjónustuna sjálfa fer fram hjá fyrirtækinu samkvæmt þeirra skilmálum. Búkk.is sér um bókunina, ekki greiðsluna.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur línu og við svörum eins fljótt og við getum, yfirleitt samdægurs á virkum dögum.
hae@bukk.is