
Annað
Melting & Vellíðan - Næringarráðgjöf
Við hjálpum fólki að finna jafnvægi og aukna vellíðan í gegnum næringu. Við trúum því að góð næring eigi að bæta lífsgæði fólks, en ekki flækja þau. Okkar markmið eða að auka lífsgæði og vellíðan einstaklinga á skynsaman og heilbrigðan hátt. Hvernig getum við hjálpað þér? Við leggjum höfuð áherslu á heildstæða og raunsæja nálgun. Við kortleggjum þínar þarfir og finnum leiðir sem passa þinni daglegu rútínu - hvort sem það er að bæta meltinguna og þarmaflóruna, öðlast betra samband við mat, eða vilt meiri orku í daglegu lífi. Næringarráðgjöfin felst í því að auka fjölbreytni í mataræðinu, frekar en að taka út heilu fæðuflokkana að óþörfu. Við erum klínískir næringarfræðingar með víðtæka reynslu í að hjálpa fólki með ýmis næringarvandamál.
Veldu þjónustu
Smelltu á þjónustu og veldu svo tíma sem hentar þér.
Næstu lausu tímar
Fyrsti laus mán kl. 10:10
